Tags
Alþýðuóperan, Ísabella Leifsdóttir, Folk Opera Iceland, Metropolitan Opera Wagner Ring, Opera Iceland, Wagner's Dream
Alþýðuóperan fór að sjá mynd Susan Frömke, Wagner’s Dream, sem fjallar um uppsetningu Metropolitan óperunnar í New York á Niflungahring Richards Wagner í leikstjórn Robert Lepage. Óperusöngvararnir Ísabella Leifsdóttir og Steinþór Jasonarson ásamt leikkonunni Sögu Garðarsdóttur ræða myndina en þau eiga það öll sameiginlegt að hafa tekið þátt í uppsetningu Alþýðuóperunnar á Ráðskonuríki. Sú uppsetning vakti athygli vegna þess hversu ofboðslega smá í sniðum hún var en aðeins voru tveir söngvarar, einn leikari og einn gítarleikari á sviði.